Tekst piosenki
Hátt ég lyfti
Huga mínum á flug
Legg við hlustir og nem
Nem vindhörpuslátt
Brátt ég eyði
öllum línum – á jörð
Sýnist umhverfið allt
Vera eilífðarblátt
Hærra, hærra
Heimsins prjál mér þykir verða fátæklegra og
Smærra
Seinna þegar
Sólin ljómar – af ást
Dylst í huga mér það
það draumljúfa kvöld
Þessi blámi
þessir hljómar – sem nást
Einnig fögur og há
Há heiðríkjutjöld
Hærra, hærra
Heimsins prjál
Mér þykir verða fátæklegra og
Smærra
Hátt ég lyfti
Huga mínum – á flug
Legg við hlustir og nem
Nem vindhörpuslátt
Brátt ég eyði
öllum línum – á jörð
Sýnist umhverfið allt
Vera eilífðarblátt
Seinna þegar
Sólin ljómar
Þessi blámi
þessir hljómar
Hátt ég lyfti
Huga mínum
Horfi yfir…











Komentarze (0)